Verðmerkingar langt frá því að vera viðunandi

„Augljóst er að verðmerkingar í bakaríum eru langt frá því …
„Augljóst er að verðmerkingar í bakaríum eru langt frá því að vera viðunandi og þurfa fyrirtækin að fara vel yfir verðmerkingar og verklag í bakaríum sínum og bregðast fljótt við tilmælum Neytendastofu til að forðast sektir,“ segir á vef Neytendastofu. Mynd úr safni. mbl.is/Kristinn

Neytendastofa gerði athugasemdir við 22 bakarí þar sem kannað var ástand verðmerkinga í síðasta mánuði. Alls voru verðmerkingar í 39 bakaríum á höfuðborgarsvæðinu kannaðar og athugað hvort verðmerkingar væru í lagi í borði, gos- og mjólkurkælum og öðrum hillum sem voru til staðar. 

Á vef Neytendastofu kemur fram að athugasemdir voru gerðar við 22 bakarí, sérstaklega var tekið eftir að vörur sem voru á afgreiðsluborði eða stökum borðum í versluninni voru oft óverðmerktar. Þá var ástand á verðmerkingum í kælum mjög oft ábótavant. 


„Augljóst er að verðmerkingar í bakaríum eru langt frá því að vera viðunandi og þurfa fyrirtækin að fara vel yfir verðmerkingar og verklag í bakaríum sínum og bregðast fljótt við tilmælum Neytendastofu til að forðast sektir. Neytendastofa fór síðast í verðmerkingaeftirlit í bakarí árið 2015 og virðist þörf á framkvæma það oftar til þess að verðmerkingar séu í viðunandi horfi,“ segir á vef Neytendastofu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK