Innan við mánuði eftir að nýi norski 200 króna seðillinn leit dagsins ljós eru fölsuð eintök af honum komin í umferð og hefur lögreglan í Vestfold-fylki, suður af Ósló, þrjá menn í haldi, grunaða um að reyna að beita fölsuðum seðlum í viðskiptum.
Rétt fyrir hádegi í gær barst lögreglu tilkynning frá matvörubúð í Tjøme um að þar vildi viðskiptavinur greiða fyrir vörur með seðlum sem ekki virtust ekta. Áfengisútsalan á staðnum tilkynnti um það sama og eins bárust tilkynningar frá hóteli og fleiri stöðum í Tønsberg þar skammt frá.
Ekki leið á löngu uns lögregla hafði þrjá menn í haldi sem reyndust hafa í fórum sínum grunsamlega útlítandi 50 og 200 króna seðla en norska ríkisútvarpið NRK hefur það eftir Knut Erik Ågrav, rannsóknarlögreglumanni hjá lögreglunni í Tønsberg, að hinir handteknu sverji af sér að þeir hafi nokkuð vitað um að seðlarnir væru óekta og kvæðust grandlausir með öllu.
Nú er svo komið að margir norskir kaupmenn hafa tekið í notkun skynjara sem peningaseðlar eru bornir undir og greinir búnaðurinn þá á augabragði hvort einhverja öryggisþætti vanti í seðilinn. Mun tæki þetta hið mesta þarfaþing en Øystein Olsen seðlabankastjóri greindi frá því í viðtölum í lok maí, þegar hinir fyrstu af nýju seðlunum voru settir í umferð, að fjöldi nýrra öryggisatriða væri kominn til sögunnar í nýju seðlunum og ekki nema brot af þeim greinanlegt með mannsauga.
Nýju norsku peningaseðlarnir, sem flestir vísa með myndefni sínu í sjávarútveg landsins í stað stórmenna á borð við listmálarann Edvard Munch sem prýðir gamla 1.000 króna seðilinn, verða settir í umferð í skömmtum, þeir síðustu undir lok ársins 2018.