Tveggja milljarða borsamningur undirritaður í Djibútí

Samningurinn var undirritaður 21. maí.
Samningurinn var undirritaður 21. maí. Mynd/Jarðboranir

Jarðboranir hafa undirritað borsamning við ríkisraforkufyrirtæki Djibútí, í Austur-Afríku, um borun tveggja hola. Heildarvirði samningsins er um 20 milljónir dollara, eða um tveir milljarðar króna. Forstjóri Jarðborana segir samninginn marka nýtt upphaf að verkefnum fyrirtækisins í Austur-Afríku. Samningurinn er um boranir við Fiale-öskju við Assal-vatn í Djibútí.

Sigurður Sigurðsson, forstjóri Jarðborana, segir samninginn marka nýtt upphaf fyrir fyrirtækið á þessu svæði. „Ég lít á þetta sem fyrstu skref okkar inn í Afríku,“ segir Sigurður. Hann segir verkefnið hafa vakið athygli annarra fyrirtækja á Jarðborunum og fleiri séu áhugasamir um samstarf. Nú sé fyrirtækið að skoða verkefni í Eþíópíu.

Verkefnið er fjármagnað af ríkisstjórn Djibútí og mun njóta styrkja og lána frá Alþjóðabankanum, Afríska þróunarbankanum og fleirum. Virði samningsins er áætlað um 20 milljónir dollara en er þó breytingum háð, að sögn Sigurðar, þar sem raforkufyrirtækið geti svo valið að bora ýmist meira eða minna.

Fyrirhugað borverk Jarðborana er við Fiale öskjuna við Assal vatn.
Fyrirhugað borverk Jarðborana er við Fiale öskjuna við Assal vatn. Kort/mbl.is


Ríkisraforkufyrirtæki Djibútí, Electricité de Djibouti (EdD), sem sinnir flutningi og dreifingu raforku í landinu, undirritaði samninginn við Jarðboranir. Fyrirhugað borverk Jarðborana er við Fiale-öskjuna við Assal-vatn, milli Ghoubbet-flóa og Assal-vatnsins, um 100 kílómetra norðvestur af Djibútí-borg.

Borunarsamningurinn, sem var undirritaður 21. maí síðastliðinn, felur í sér borun tveggja 2.500 metra djúpra jarðhitahola á árinu 2018 með möguleikum á tveimur holum til viðbótar. Undirbúningur verksins er hafinn en raunverulegar framkvæmdir hefjast upp úr næstu áramótum og standa yfir í fjóra til fimm mánuði. Áætlað er að um 40 starfsmenn Jarðborana komi að verkinu. Stefnt er að því að nota borinn Tý, en hann er nú í notkun í öðru verkefni fyrirtækisins í Níkaragva.

Hér má sjá mynd af borsvæðinu.
Hér má sjá mynd af borsvæðinu. Mynd/Sigurður Sigurðsson


Megintilgangur verkefnisins er að kanna jarðhitasvæðið og staðfesta auðlindina. Sigurður segir að ekki hafi mikið verið virkjað í Djibútí en að vísbendingin um jarðhita leynist í Kenýu. „Í Kenýu, sem er á sama jarðhitahrygg og Djibútí, hefur mikið verið virkjað undanfarin ár og það var litið til þess í þessu verkefni.“

Íslenska borfyrirtækið Jarðboranir er leiðandi á heimsvísu á sviði háhitaborana og hefur margra ára reynslu í bæði borun í há- og lághita. Rekstur félagsins hefur verið á Asoreyjum, Bretlandi, Danmörku, Írlandi, Ungverjalandi, Þýskalandi, Níkaragva, Filippseyjum, Karíbahafi (Dominica og Montserrat), Sviss og Nýja-Sjálandi. Nú sem stendur er félagið í verkefnum á Íslandi, Karíbahafi og Níkaragva.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK