Drífa Sig til liðs við Attentus

Drífa Sigurðardóttir.
Drífa Sigurðardóttir. Ljósmynd/Attentus

Drífa Sigurðardóttir hefur gengið til liðs við mannauðs- og ráðgjafarfyrirtækið Attentus en verkefni hennar verður að þjónusta fyrirtæki við innleiðingu á jafnlaunastaðli auk þess sem hún verður hluti af teyminu „Mannauðsstjóri til leigu“. Fram kemur í fréttatilkynningu að Drífa hafi mikla reynslu af jafnréttismálum, mannauðsmálum, kjara- og launamálum, verkefnastjórnun, stefnumótun og innleiðingu gæðastaðla.

„Drífa kemur til Attentus frá ISAVIA þar sem hún hefur starfað sem mannauðsstjóri í Reykjavík. Þar áður var Drífa starfsmannastjóri hjá Mannviti og deildarstjóri launa- og kjaraþróunar hjá Eimskip. Á árunum 1997-2004 starfaði Drífa sem ráðgjafi hjá PricewaterhouseCoopers í mannauðsmálum, starfsþróun og fræðslu, ráðningum, launa- og kjaramálum. Drífa tók þátt í stofnun Flóru, félags mannauðsstjóra á Íslandi, og situr þar að auki í stjórn Birtu lífeyrissjóðs.“

Drífa lauk M.Sc. í opinberri stefnumótun frá Strathclyde University, Glasgow, og BA í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK