Töluvert ódýrari hjá Costco

Verslun Costco var opnuð í dag.
Verslun Costco var opnuð í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Verð á dekkjum hjá Costco er töluvert lægra en almenningi hefur boðist fram að þessu samkvæmt frétt á vef FÍB, Félags íslenskra bifreiðaeigenda. FÍB heimsótti Costco í Kauptúni til að kanna verð og dekkjaframboð sem verður í versluninni. Verðkönnun tekur ekki til allra dekkja sem Costco býður upp á en við opnun er Costco aðeins að bjóða viðskiptavinum sínum Michelin-hjólbarða og til að fá samanburð var verð á dekkjum og dekkjaþjónustu kannað hjá N1 sem er umboðsaðili Michelin á Íslandi.

„Í þessari athugun kemur í ljós að verð á dekkjum hjá Costco er töluvert lægra en almenningi hefur boðist fram að þessu. Í því sambandi má nefna að gangurinn með umfelgun og jafnvægistillingu á 15 tommu dekkjum, 195/65, undir fólksbíl kostar 46.396 krónur hjá Costco en hjá N1 68.768 krónur. Félagsmenn í FÍB njóta afsláttarkjara hjá N1 og þá er verðmunurinn heldur minni,“ segir á vef FÍB.

Þá er tekið fram að viðskiptavinum Costco býðst að kaupa hjólbarða í stykkjatali og innifalin er þjónustan sem þeir sjálfir reka, umfelgun og jafnvægisstilling. Til að njóta þessara kjara hjá Costco kostar ársaðild fyrir einstaklinga 4.800 krónur en fyrirtækjaaðild kostar 3.800 fyrir árið.

Hér fyrir neðan geta bifreiðaeigendur séð niðurstöðuna í samanburðinum sem gerður var í dag.  Upplýsingarnar um verðið hjá Costco fengust í versluninni við Kauptún í Garðabæ. Upplýsingar um verð á hjólbörðum hjá N1 eru teknar af heimasíðu fyrirtækisins og verð fyrir dekkjaskipti byggir á upplýsingum frá N1 við Ægisíðu í Reykjavík.

Nokkur verðdæmi FÍB má sjá hér að neðan.

Á þessum 17 tommu dekkjum munar 94,89% á verði á …
Á þessum 17 tommu dekkjum munar 94,89% á verði á fjórum dekkjum með umfelgun og jafnvægisstillingu. Skjáskot
Á þessum 15 tommu dekkjum munar 41,13% á verðinu á …
Á þessum 15 tommu dekkjum munar 41,13% á verðinu á fjórum dekkjum og umfelgun og jafnvægisstillingu. Skjáskot
Hér munar 80,6%.
Hér munar 80,6%. Skjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK