Ný í framkvæmdastjórn Nýherja

Linda Waage.
Linda Waage. Ljósmynd/Nýherji

Linda Björk Waage hefur verið ráðin framkvæmdastjóri yfir Umsjá, nýju sviði innan Nýherja þar sem rekstrarþjónusta og innviðir eru sett undir sama hatt. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu en Linda hefur starfað hjá því frá árinu 2011 og sinnt þar ýmsum lykilstörfum innan Nýherja, nú síðast sem forstöðumaður þjónustuborðs og UT-rekstrar.

Linda lauk MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2009 og BA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1997. Linda tekur formlega sæti í framkvæmdastjórn Nýherja 1. júlí.

Auk Lindu sitja í framkvæmdastjórninni; Finnur Oddsson forstjóri, Gunnar Petersen, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Gunnar Zoëga, framkvæmdastjóri viðskiptaframtíðar, Dröfn Guðmundsdóttir mannauðsstjóri og Emil Gunnar Einarsson, framkvæmdastjóri notendalausna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK