Bjarni nýr upplýsingafulltrúi Rio Tinto

Bjarni Már er hagfræðingur að mennt og hefur síðan 2005 …
Bjarni Már er hagfræðingur að mennt og hefur síðan 2005 verið hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Þar hefur hann unnið að kynningu, miðlun og greiningu á starfsumhverfi iðnaðar á Íslandi.

Bjarni Már Gylfason hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi Rio Tinto á Íslandi sem rekur álverið í Straumsvík. Bjarni Már er hagfræðingur að mennt og hefur síðan 2005 verið hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Þar hefur hann unnið að kynningu, miðlun og greiningu á starfsumhverfi iðnaðar á Íslandi.

Áður en Samtök álframleiðenda voru formlega stofnuð árið 2010 sinnti Bjarni Már sameiginlegu starfi þeirra innan Samtaka iðnaðarins og þekkir vel til starfsskilyrða áliðnaðarins á Íslandi samkvæmt fréttatilkynningu. Hann kenndi hagfræði og skyldar greinar við Verzlunarskóla Íslands 2000-2005 og var blaðamaður á Viðskiptablaðinu og DV 1998-2000.

Hjá Rio Tinto mun hann bera ábyrgð á samskipta- og kynningarmálum, almannatengslum, samskiptum við hagsmunaaðila auk stefnumótunar í sjálfbærri þróun og samfélagslegri ábyrgð.

Bjarni Már er kvæntur Jóhönnu Vernharðsdóttur viðskiptafræðingi og eiga þau fjögur börn. Hann kemur til starfa nú um mánaðamótin.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK