13,6 milljarða ávinningur af VIRK

Ávinningur á hvern útskrifaðan einstakling jókst frá síðasta ári.
Ávinningur á hvern útskrifaðan einstakling jókst frá síðasta ári. Mynd/Aðsend

13,6 milljarða króna ávinningur var af starfsemi VIRK starfsendurhæfingarsjóðs árið 2016 og ávinningur á hvern útskrifaðan einstakling úr þjónustu VIRK jókst frá fyrra ári.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá VIRK.

Reiknaður meðalsparnaður á hvern útskrifaðan einstakling frá VIRK nam 12,2 milljónum króna á árinu 2016 samkvæmt skýrslu sem Vigfús Ásgeirsson, tryggingastærðfræðingur hjá Talnakönnun hf., vann fyrir stjórn VIRK.

Meðalsparnaður á einstakling eykst milli ára, var rúmlega 10 milljónir árin 2013-2015.

Meðalsparnaður á einstakling eykst mili ára.
Meðalsparnaður á einstakling eykst mili ára. Mynd/Aðsend

Þetta er fjórða árið í röð sem VIRK fær Talnakönnun til að greina árangur og ávinning af starfsemi sinni út frá ópersónugreinanlegum upplýsingum úr gagnagrunni VIRK. Skýrslan sýnir 13,6 milljarða króna ávinning af starfsemi VIRK árið 2016 en niðurstöður fyrri athugana sýndu að ávinningurinn af starfi VIRK var 13,8 milljarðar 2015, 11,2 milljarðar króna 2014 og 9,7 milljarðar á árinu 2013.

Rekstrarkostnaður VIRK árið 2016 nam 2,4 milljörðum, 2,2 milljörðum 2015, 2 milljörðum 2014 og 1,3 milljörðum á árinu 2013, að því er segir í tilkynningunni.

Skýrsla Talnakönnunar verður meðal umfjöllunarefna á ársfundi VIRK sem haldinn verður á Grand hótel á morgun og hefst hann klukkan 11.

Að hefðbundnum ársfundarstörfum loknum stendur VIRK fyrir örráðstefnu um starfsendurhæfingu og vinnumarkaðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK