Fjórfalt meiri afgangur en gert var ráð fyrir

Tekjur sveitarfélagsins námu rúmlega 28,1 milljarði en gert hafði verið …
Tekjur sveitarfélagsins námu rúmlega 28,1 milljarði en gert hafði verið ráð fyrir ríflega 26 milljörðum í tekjur fyrir A og B-hluta. mbl.is/Hjörtur

Rekstrarafgangur Kópavogsbæjar nam tæplega 1,2 milljörðum króna árið 2016. Það er ríflega fjórfalt meiri afgangur en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun sem gerði ráð fyrir 257 milljóna afgangi

Þá urðu tímamót í rekstri Kópavogsbæjar í árslok 2016 þegar skuldahlutfall bæjarins fór undir 150% viðmið. Skuldahlutfall Kópavogsbæjar var 146 % í árslok sem þýðir að bærinn er laus undan eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, tveimur árum fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Þetta kemur fram í ársreikningi Kópavogsbæjar sem lagður verður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn þriðjudaginn 25.apríl.

„Það eru ánægjuleg og mikilsverð tímamót að skuldahlutfallið sé komið niður fyrir 150% og eins að rekstrarafgangur sé svo mikill sem raun ber vitni. Jákvæð afkoma bæjarfélagsins skýrist meðal annars af lóðaúthlutunum og fjölgun í bæjarfélaginu. Það eru ýmis jákvæð teikn á lofti, en við leggjum samt áfram áherslu á aðhald og í rekstrinum, það er ekki síst nauðsynlegt þegar svo mikil þensla er í samfélaginu. Ársreikningurinn endurspeglar þessar áherslur sem lagðar hafa verið í rekstri bæjarfélagsins undanfarin ár,“ er haft eftir Ármanni  Kr. Ólafssyni bæjarstjóra Kópavogs í tilkynningu.

Laun og launatengd gjöld voru alls 14,2 milljarðar króna sem er 3,2% yfir því sem áætlað var, einkum vegna launahækkana. Framlag til lífeyrisskuldbindinga sveitarfélagsins voru tæplega 1,2 milljarðar króna sem er 823 milljónir umfram áætlun. Hækkunin er meðal annars tilkomin vegna breytinga á reiknigrunni lífeyris, þar sem meðal annars er tekið tillit til lengri ævilíka.

Heildarfjöldi starfsmanna hjá sveitarfélaginu í árslok 2016 var 2.856 en meðalfjöldi stöðugilda 2.165.

Tekjur sveitarfélagsins námu rúmlega 28,1 milljarði en gert hafði verið ráð fyrir ríflega 26 milljörðum í tekjur fyrir A og B-hluta. Eigið fé samstæðunnar nam í árslok 17,2 milljörðum, en eigið fé A-hluta nam tæplega 16 milljörðum.

Veltufé frá rekstri, var 3,6 milljarðar króna, en áætlanir höfðu gert ráð fyrir 3,4 milljörðum. Veltufé frá rekstri sýnir hvað rekstur gefur af sér til að standa undir framkvæmdum og afborgunum lána.

Rekstrarniðurstaða A-hlutans var jákvæð um 617 milljónir króna en gert hafði verið ráð fyrir 103 milljóna króna afgangi.

Skuldahlutfall samstæðu er sem fyrr segir 146% en var 162,5% í árslok 2015. Það var hæst 242% árið 2010. Ekki voru tekin ný lán á árinu 2016 og alls greiddar 2,1 milljarðar í afborganir lána.

Á síðasta ári hófust framkvæmdir við nýtt íþróttahús við Vatnsendaskóla. Lokið var við stækkun Hörðuvallaskóla. Keypt var nýtt húsnæði fyrir stjórnsýslu bæjarins og húsnæði fyrir nýtt búsetuúrræði í félagsþjónustu. Þá keypti bærinn húsnæði Myndlistarskólans í Kópavogi.

„Af umfangsmiklum verkefnum á árinu 2017 má nefna að áfram verður haldið með íþróttahús Vatnsendaskóla. Framkvæmdir við húsnæði fyrir Skólahljómsveit Kópavogs hefjast síðar á þessu ári og stækkun Kársnesskóla verður flýtt. Stefnt er að sölu fasteigna í Fannborg sem hýst hafa húsnæði stjórnsýslunnar. Þá verður íbúalýðræðisverkefnið Okkar Kópavogur sett í gang í annað sinn. Ekki verða tekin ný lán vegna þessara verkefna,“ segir í tilkynningunni.

Íbúar Kópavogs voru 35.234 þann 1. desember 2016 og fjölgaði um 1.129 frá fyrra ári eða um 3,31 %.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK