Skaginn hlaut Útflutningsverðlaun forseta Íslands

Ingólfur Árnason tekur á móti verðlaununum.
Ingólfur Árnason tekur á móti verðlaununum. Ljósmynd/Aðsend

Íslenska tækni- og framleiðslufyrirtækið Skaginn hlaut í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands sem veitt voru í 29. skipti. Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans, veitti verðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, var sæmd sérstakri heiðursviðurkenningu við sama tilefni. Viðurkenninguna hlýtur hún fyrir að hafa með starfi sínu borið hróður Íslands víða um heim og stuðlað að jákvæðu umtali um land okkar og þjóð. 

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar segir að Skaginn hf. fái verðlaunin fyrir að hafa náð afar athyglisverðum árangri í að þróa, framleiða og selja tækjabúnað fyrir matvælaiðnaðinn, einkum fiskvinnsluna.

Frá afhendingu verðlaunanna í dag.
Frá afhendingu verðlaunanna í dag. Ljósmynd/Aðsend

Hefur selt vörur sínar víðs vegar um heiminn

„Fyrirtækið er í fremstu röð þeirra íslensku fyrirtækja sem hafa náð að brjóta sér leið inn á alþjóðlegan matvælamarkað með framleiðsluvörur sem í upphafi eru þróaðar í nánu samstarfi við íslensk framleiðslufyrirtæki. Sérstaða Skagans hf. er fólgin í byltingarkenndum tækninýjungum hvað varðar íslausa kælingu á matvælum, sjálfvirkni og lausnum við pökkun og flutning á afurðunum,“ segir í tilkynningunni en stofnun fyrirtækisins má rekja aftur til ársins 1985 þegar Ingólfur Árnason, aðaleigandi Skagans hf., hóf að vinna við nýsköpun og þróun á vinnslubúnaði fyrir fiskiðnað.

Í dag er fyrirtækið rekið í þremur einingum sem eru Skaginn hf., Þorgeir og Ellert hf. og 3X Technology á Ísafirði. Þessi þrjú systurfyrirtæki vinna þétt saman að þróun, hönnun og framleiðslu og eru framleiðsluvörurnar kynntar og seldar undir sameiginlegu merki félaganna – Skaginn 3X.

Skaginn hefur selt vörur sínar víðs vegar um heiminn en meginþunginn hvað fiskiðnað varðar er á svæðinu í kringum Norður-Atlantshaf og hvað kjötiðnað varðar er hann mestur í Suður- og Norður-Ameríku. Síðasti landvinningur fyrirtækisins var sala á frysti fyrir kjúklingavinnslu í Chile. Á síðasta ári var m.a. unnið að uppsetningu á einni fullkomnustu uppsjávarverksmiðju í heimi, hjá Eskju á Eskifirði. Um þessar mundir er unnið hörðum höndum við að ljúka þróun og uppsetningu á vinnsludekki og sjálfvirku lestarkerfi um borð í ferskfiskskip HB Granda.

Velta Skagans í fyrra var um 4,4 milljarðar króna og heildarvelta systurfyrirtækjanna þriggja um 6,0 milljarðar króna. Í heildina voru starfsmenn um 180.

Guðni og Vigdís.
Guðni og Vigdís. Ljósmynd/Aðsend

Vigdísi Finnbogadóttur veitt sérstök heiðursviðurkenning

Eins og fyrr segir var frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta, veitt sérstök heiðursviðurkenning fyrir að hafa með starfi sínu hafa borið hróður Íslands víða um heim og stuðlað að jákvæðu umtali um land okkar og þjóð. 

„Sigur Vigdísar í forsetakosningunum varpaði kastljósi alheimsins á hana og á Ísland í leiðinni.
Í ræðu sinni um Vigdísi hafði Sigsteinn Grétarsson, formaður úthlutunarnefndar, m.a. á orði:
„Við Íslendingar spegluðum okkur í þeirri mynd sem Vigdís dró upp af landi okkar og þjóð. Hún minnti okkur á að það er lán að vera fæddur hér á landi, hún minnti okkur á mikilvægi þess að standa vörð um íslenska tungu og kunna skil á sögu þjóðarinnar og menningu. Og ekki hvað síst minnti hún okkur á að konur og karlar eru jafnokar á öllum sviðum.“,“ segir í tilkynningunni.

Eftir að Vigdís lét af embætti hefur hún unnið að ýmsum málum, einkum tengdum menningu og tungumálum. Hún er m.a. velgjörðarsendiherra UNESCO og er félagi í samtökunum Council of Women World Leaders. Frá árinu 2001 hefur rannsóknarstofnun Háskóla Íslands í erlendum tungumálum verið kennd við hana og á morgun – sumardaginn fyrsta – verður nýbygging fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum vígð við hátíðlega athöfn. Þar verður starfrækt fræðslu- og upplifunarsetur og í húsinu er aðstaða fyrir fyrirlestra-, ráðstefnu- og sýningarhald. Þar verður einnig Vigdísarstofa, tileinkuð Vigdísi Finnbogadóttur, þar sem hægt verður að fræðast um líf hennar og störf.

Í tilkynningunni segir að tilgangurinn með veitingu útflutningsverðlaunanna sé að vekja athygli á  þjóðhagslegu mikilvægi gjaldeyrisöflunar og alþjóðlegra viðskipta og heiðra þá sem hafa náð sérstaklega góðum árangri í sölu og markaðssetningu á íslenskum vörum og þjónustu erlendis.

Ljósmynd/Aðsend

Verðlaunin veitt í 29. sinn

Útflutningsverðlaunin eru nú veitt í 29. sinn en þau voru fyrst veitt árið 1989. Meðal annarra fyrirtækja er hlotið hafa verðlaunin í gegnum tíðina eru Bláa lónið, CCP, Hampiðjan, Trefjar ehf., Icelandair Group og Ferðaskrifstofa bænda, og á síðasta ári hlaut Nox Medical verðlaunin.

Úthlutunarreglur kveða á um að Útflutningsverðlaun forseta Íslands skuli veitt fyrirtækjum eða einstaklingum, íslenskum eða erlendum, fyrir árangursríkt starf að útflutningi á íslenskum vörum eða þjónustu á erlendum markaði. Veiting verðlaunanna tekur mið af verðmætisaukningu útflutnings, hlutdeild útflutnings í heildarsölu, markaðssetningu á nýjum markaði, ásamt fleiru.

Í úthlutunarnefndinni sátu að þessu sinni: Örnólfur Thorsson, frá embætti forseta Íslands, Runólfur Smári Steindórsson, frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, Björgólfur Jóhannsson frá Viðskiptaráði, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, frá Alþýðusambandi Íslands, og Sigsteinn Grétarsson frá Íslandsstofu, en Íslandsstofa ber ábyrgð á undirbúningi og kostnaði við verðlaunaveitinguna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK