Segir flugeldasölum að laga viðskiptahætti sína

Á vef Neytendastofu kemur fram að fyrir síðustu áramót hafi …
Á vef Neytendastofu kemur fram að fyrir síðustu áramót hafi stofnuninni borist nokkur fjöldi ábendinga vegna útsölu hjá flugeldasölum og í kjölfarið voru sölusíður og auglýsingar fjölda aðila á flugeldamarkaðnum skoðaðar. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Neytendastofa hefur beint þeim tilmælum til ákveðinna flugeldasala að laga viðskiptahætti sína fyrir næsta sölutímabil að viðlögðum sektum. Á vef Neytendastofu kemur fram að fyrir síðustu áramót hafi stofnuninni borist nokkur fjöldi ábendinga vegna útsölu hjá flugeldasölum og í kjölfarið voru sölusíður og auglýsingar fjölda aðila á flugeldamarkaðnum skoðaðar.

Á vef Neytendastofu kemur fram að stofnunin hafi lokið málum málum gagnvart sölusíðunum Gullborg, Alvöru flugeldar, Súperflugeldar, Stjörnuljós.is, Flugeldakaup.is og Flugeldasala.is með ákvörðunum ýmist um villandi tilboðsverðum eða upplýsingaskorti á vefsíðum fyrirtækjanna.

„Þegar verið er að selja vörur á netinu þá er mikilvægt að seljendur gefi fullnægjandi upplýsingar. Neytendur eiga að geta auðveldlega séð frá hvaða aðila þeir eru að kaupa vöruna því eiga að koma fram allar upplýsingar um seljanda t.d. nafn, kennitala, heimilisfang, virðisaukaskattsnúmer o.fl. Einnig þurfa að koma fram upplýsingar um vörunar þar sem neytendur sjá ekki vöruna þegar hún er keypt heldur aðeins þær upplýsingar sem koma fram á sölusíðunum,“ segir á vef Neytendastofu.

Þá er bent á að þar sem að sölutímabil flugelda er stutt eða frá 28. desember til 6. janúar er oft erfiðara fyrir flugeldasala að bjóða afslátt eða kynningartilboð.

„Sömu reglur gilda um markaðssetningu hvort sem varan er seld í stuttan tíma eins og með flugelda eða hvort um sé að ræða vöru sem seld er allt árið. Vara verður að hafa verið seld á því verði sem auglýst er sem fyrra verð,“ segir á vefnum en Neytendastofa mun halda áfram fylgjast með auglýsingum flugeldasala á næsta sölutímabili til þess að tryggja eðlilega viðskiptahætti gagnvart neytendum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK