Rúmlega 20% hækkun á fasteignaverði á einu ári

Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,7% milli mánaða í mars.
Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,7% milli mánaða í mars. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Hækkanir á fasteignaverði á höfuðborgarsvæðinu í mars voru verulegar og meiri en sést hafa lengi. Virðist takturinn stígandi samkvæmt Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans.

Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,7% milli mánaða í mars. Þar af hækkaði fjölbýli um 2,5% og sérbýli um 3,3%. Vitnað er í tölur Þjóðskrár en samkvæmt þeim hefur fjölbýli hækkað um 21,3% á síðustu 12 mánuðum, sérbýli um 20,2% og er heildarhækkunin 20,9%. „Hækkanir síðustu 12 mánaða eru mjög miklar og þarf að fara allt aftur til upphafs ársins 2006 til að sjá álíka tölur,“ segir í Hagsjá.

Hækkanir á bæði fjölbýli og sérbýli hafa aukist verulega allra síðustu mánuði. Bent er á að árshækkun fasteignaverðs var lengi vel á bilinu 8-10% en er nú komin yfir 20% markið.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis í marsmánuði var þannig um 1,7% lægri en í mars 2016, þannig að allar nafnverðshækkanir á húsnæði síðasta árið koma nú fram sem meiri raunverðshækkun en sú tala sýnir. Raunverð fasteigna hefur þannig hækkað um u.þ.b. 21,3% á einu ári frá mars 2016 til mars 2017.

Raunverð fasteigna komst hæst í október 2007 en féll síðan mikið eftir það. Nú í mars vantar einungis um 1% upp á raunverðið til þess að sögulegri hæstu stöðu verði náð aftur. Miðað við þróunina undanfarið mun það gerast í þessum mánuði að mati hagfræðideildarinnar.

Miklar hækkanir fasteignaverðs einskorðast þó ekki við höfuðborgarsvæðið. Sé litið á stærstu sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins má sjá að þróunin er mjög svipuð þar.

Í Hagsjá er tekið fram að mikil kaupmáttaraukning ráðstöfunartekna hafi lengi vel verið helsti drifkraftur hækkana fasteignaverðs.

„Nokkuð hefur dregið úr kaupmáttaraukningu og því er það einkum misvægi á milli framboðs og eftirspurnar á fasteignum sem heldur spennunni á markaðnum uppi. Það mun taka langan tíma að auka framboð húsnæðis og því mun þetta spennuástand vara í nokkur misseri enn,“ segir í Hagsjá.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK