Jakob hættir sem forstjóri VÍS

Jakob Sigurðsson
Jakob Sigurðsson Aðsend mynd

Jakob Sigurðsson hefur verið ráðinn forstjóri breska félagsins Victrex plc. og hefur því sagt starfi sínu lausu sem forstjóri Vátryggingafélags Íslands hf.

Þetta kemur fram í tilkynningu VÍS til Kauphallarinnar. Þar segir að Victrex plc. sé skráð á hlutabréfamarkað í Bretlandi, er hluti af FTSE 250-hlutabréfavísitölunni og er markaðsverðmæti þess 250 milljarðar króna. Félagið er leiðandi í framleiðslu fjölliða (polymers) og telja viðskiptavinir þess t.a.m. stærstu flugvéla- og snjalltækjaframleiðendur heims.

Jakob mun starfa áfram sem forstjóri VÍS á meðan stjórn vinnur að því að finna eftirmann hans og þannig tryggja að forstjóraskipti hafi sem minnst áhrif á félagið.

„Það er mikil eftirsjá að frábærum og kraftmiklum samstarfsmönnum hjá VÍS. Tími minn sem forstjóri VÍS varð styttri en ég reiknaði með en tækifærið sem mér býðst nú er einfaldlega þess eðlis að því var ekki hægt að hafna. Ég hef mikla trú á þeirri vegferð sem VÍS er á og óska starfsmönnum góðs gengis í þeim verkefnum sem framundan eru um leið og ég þakka þeim af alhug samfylgdina síðustu mánuði,“ er haft eftir Jakobi í tilkynningu.

„Jakob hefur leitt stefnumótun VÍS af miklum krafti og hafa bæði núverandi og fyrrverandi stjórnir félagsins yfirfarið hana. Það kemur alltaf maður í manns stað og er VÍS vel í stakk búið til að takast á við þær áskoranir sem framtíðin felur í sér. Jakobi hefur boðist starfstækifæri sem marga dreymir um og getum við ekki annað en samglaðst honum og stutt hann í þessari ákvörðun. Fyrir hönd stjórnar VÍS vil ég þakka Jakobi fyrir gott starf í þágu félagsins og um leið óska honum velfarnaðar á nýjum vettvangi,“ er haft eftir Svanhildi Nönnu Vigfúsdóttur, stjórnarformanni VÍS.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK