Hlutafé í Pressunni aukið um 300 milljónir

Björn Ingi Hrafnsson hættir sem stjórnarformaður Pressunnar og Gunnlaugur Árnason …
Björn Ingi Hrafnsson hættir sem stjórnarformaður Pressunnar og Gunnlaugur Árnason tekur við. mbl.is/Árni Sæberg

Gunnlaugur Árnason er nýr stjórnarformaður útgáfufélagsins Pressunnar. Meðstjórnendur eru þau Þorvarður Gunnarsson, fyrrum forstjóri Deloitte á Íslandi, Sesselja Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins TagPlay, og Halldór Kristmannsson, yfirmaður samskipta- og markaðssviðs lyfjafyrirtækisins Alvogen. 

Björn Ingi Hrafnsson, sem verið hefur stjórnarformaður og útgefandi Pressunnar frá stofnun fyrirtækisins, hverfur nú að eigin ósk til annarra verkefna innan samstæðunnar. Hann mun m.a. hafa umsjón með sjónvarpsþættinum Eyjunni á ÍNN. Björn Ingi tekur þátt í hlutafjáraukningunni ásamt viðskiptafélaga sínum og meðstofnanda Pressunnar, Arnari Ægissyni. Þá eiga þeir jafnframt kauprétt í félaginu.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Þar segir að Pressan sé nú að ljúka hlutafjáraukningu fyrirtækisins þar sem breiður hópur fjárfesta kemur að rekstri samstæðunnar. Hlutafé í Pressunni, móðurfélagi Vefpressunnar, DV og Birtíngs, verður aukið um 300 milljónir króna og formlega verður gengið frá skráningu hlutafjár á næstu dögum.  

Skúli í Subway og Róber Wessman meðal fjárfesta

Átta félög hafa staðfest þátttöku sína í hlutafjáraukningu í Pressunni. Fjárfestingarfélagið Dalurinn ehf. leggur til 155 milljónir en félagið er í eigu Róberts Wessman, Árna Harðarsonar, Hilmars Þórs Kristinssonar, Halldórs Kristmannssonar og Jóhanns G. Jóhannssonar.

Þá leggur Kringluturninn ehf. til 50 milljónir en það félag er í eigu Björns Inga og Arnars Ægissonar. OP ehf. leggur til 47 milljónir en það er í eigu Hreins Loftssonar, Karls Steins Óskarssonar og Matthíasar Björnssonar. Þá leggur FÓ eignarhald ehf., sem er í eigu Andra Gunnarssonar, Fannars Ólafssonar og Gests Breiðfjörð Gestssonar, fram 20 milljónir og Eykt ehf., sem er í eigu Péturs Guðmundssonar, 15 milljónir.

Gufupressan ehf., sem er í eigu Skúla Gunnars Sigfússonar, oftast kenndum við Subway, leggur til 10 milljónir. Venediktsson samsteypan sem er í eigu Sigurvins Ólafssonar leggur til 2 milljónir og Viel ehf., sem er í eigu Viggós Einars Hilmarssonar, eina milljón.

Félag í eigu Róberts Wessman leggur til 155 milljónir.
Félag í eigu Róberts Wessman leggur til 155 milljónir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gera ráð fyrir 1,3 milljarða veltu

Meðal miðla samstæðunnar eru DV,  Pressan.is, Eyjan.is, bleikt.is, 433.is, doktor.is og DV.is, auk sjónvarpsstöðvarinnar ÍNN. Þá eru fjölmörg landsmálablöð gefin út af útgáfunni, t.d. Akureyri vikublað, Vesturland, Austurland, Suðri, Vestfirðir og Reykjanes. Undir hatti Birtíngs eru t.d. gefin út tímaritin Vikan, Gestgjafinn, Nýtt líf og Hús og híbýli.   

Gert er ráð fyrir því að sameiginleg velta Pressunnar og tengdra félaga árið 2017 verði um 1,3 milljarðar króna. 

„Þetta eru mikil tímamót og ég fagna þessum tíðindum mjög, enda höfum við unnið að þessu um margra mánaða skeið,“ er haft eftir Birni Inga í fréttatilkynningu.  „Það er mikil viðurkenning fyrir þetta fyrirtæki að ljúka svo umfangsmikilli hlutafjárhækkun og um leið mikilvægt að breiður hluthafahópur komi að rekstri tæplega þrjátíu ólíkra fjölmiðla. Það hefur verið algjörlega mögnuð lífsreynsla að byggja þetta fyrirtæki upp á undanförnum árum með okkar góða samstarfsfólki og mikilvægt að tryggja fjárhagslegan grundvöll þess til lengri framtíðar. Allir vita hversu mikilvæg starfsemi fjölmiðla er í okkar samfélagi, en jafnframt að rekstrarumhverfi þeirra hefur verið krefjandi. Nú er ég spenntur að taka þátt í frekari uppbyggingu sem stór hluthafi og sinna jafnframt öðrum verkefnum.“

DV er meðal þeirra miðla sem eru í eigu Pressunnar.
DV er meðal þeirra miðla sem eru í eigu Pressunnar. mbl.is/Sverrir

Félagið vel í stakk búið

Gunnlaugur Árnason segir það krefjandi verkefni að koma að rekstri Pressunnar. „Félagið hefur vaxið hratt á síðustu árum og nú er kominn tími til þess að staldra við og leitast við að nýta tækifæri sem felast innan samstæðunnar. Félagið er vel í stakk búið til þess að bjóða auglýsendum upp á fjölbreyttan lesendahóp á vefnum, á pappír og í sjónvarpi – dreifingarleiðir sem gera samstæðunni kleift að nýta sér nýja tekjustrauma sem hafa verið að þróast á síðustu árum. Aðkoma nýrra hluthafa hefur þau áhrif að hægt verður að bæta enn frekar þjónustu við notendur miðla samstæðunnar.“ 

Núverandi framkvæmdastjóri Birtíngs, Karl Steinar Óskarsson, mun sinna því hlutverki á samstæðugrundvelli. Þá mun Matthías Björnsson, sem verið hefur fjármálastjóri Birtíngs, verða fjármálastjóri samstæðunnar. Sigurvin Ólafsson verður áfram framkvæmdastjóri DV.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK