Ábendingum um gölluð snuð hefur fjölgað

Neytendastofa bendir á að áður en snuð er sett upp …
Neytendastofa bendir á að áður en snuð er sett upp í barn er gott ráð að toga í túttuna og snuðið til að athuga hvort að hún sé heil. Þá mega snuddubönd ekki vera lengri en 22 cm að öðrum kosti er hætta á að bandið geti vafist um hálsinn á börnum og valdið köfnun. Mynd úr safni. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Ábendingum um gölluð snuð og snuddubönd hefur fjölgað undanfarið að sögn Neytendastofu. Óljóst er hvort að það sé vegna þess að framleiðslan hefur breyst eða hvort að neytendur séu duglegri að senda ábendingar til réttra aðila.

Vegna þessarar aukningar hefur verið ákveðið að Neytendastofa muni leggja áherslu á að skoða snuð og snuddubönd. Það er í samræmi við áherslur stofnunarinnar síðustu árin en þá hafa barnavörur verið skoðaðar sérstaklega,“ segir á vef stofnunarinnar sem hefur nú í samstarfi við eftirlitsstofnanir í Evrópu farið í stórátak vegna öryggis snuða og snuddubanda. 

Skoðaðar hafa verið yfir 1500 tegundir af snuðum og snudduböndum og af þeim valdar yfir 200 tegundir af snuðum sem sendar voru í prófun. Markmiðið var að prófa frá öllum framleiðendum sem eru með snuð á markaði í Evrópu og fleiri en eina tegund frá hverjum. Rúmlega 1300 eintök af snuðum og snudduböndum voru send í prófun. Neytendastofa sendi bæði latex snuð og sílikon snuð en hefðbundin snuddubönd og snuddubönd sem börn geta leikið með voru líka send til prófunar.

Á vef Neytendastofu kemur fram að á síðustu 10 árum hafa 78 tilkynningar borist í RAPEX – tilkynningakerfið varðandi snuð eða snuddubönd sem geta verið hættuleg börnum. Flestar tilkynningar um snuð voru vegna köfnunarhættu vegna smárra hluta sem losna eða að loftgöt hefur vantað.

„Snudduböndin sem nú eru framleidd eru styttri en áður svo ekki á lengur að vera kyrkingarhætta af þeim en aftur á móti eru að koma tilkynningar um að litlir hlutir brotni eða detti af böndunum,“ segir á vef Neytendastofu. Á hverju ári eru skráð, í IDB sem er slysa gagnabanki í Evrópu, um 44 slys á börnum 0-4 ára, tengdum snuðum, sem eru það alvarleg að það þarf að fara með börnin á slysavarðastofu. Ekki eru öll slys skráð í IDB og mörg ríki eru með engar skráningar. 

Bent er á að forráðamenn geti skoðað ýmsa hluti sjálfir til að auka öryggi barnanna. Áður en snuð er sett upp í barn er til dæmis gott ráð að toga í túttuna og snuðið til að athuga hvort að hún sé heil. Þá mega snuddubönd ekki vera lengri en 22 cm að öðrum kosti er hætta á að bandið geti vafist um hálsinn á börnum og valdið köfnun. Foreldrar þurfa jafnframt að fylgjast vel með hvort að smáir hlutir geti losnað af böndunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK