Sömdu um hraðlest á Suðurnesjum

Frá vinstri: Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Magnús …
Frá vinstri: Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Magnús Stefánsson bæjarstjóri í Garðinum, Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri Voga, Kjartan Eiríksson framkvæmdastjóri Kadeco, Runólfur Ágústsson framkvæmdastjóri Fluglestarinnar-þróunarfélags ehf., Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri í Sandgerði og Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Ljósmynd/Aðsend

Sveitarfélögin Reykjanesbær, Sandgerði, Vogar og Garður og Fluglestin-þróunarfélag hafa undirritað samstarfssamning um skipulagsmál vegna hraðlestar milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fluglestinni-þróunarfélagi.

Í henni segir, að markmiðið með samningnum sé að tryggja hagkvæmni framkvæmdarinnar og að styrkja byggð og atvinnulíf á Suðurnesjum. Samið hafi verið um greiningu á samfélagslegum áhrifum framkvæmdarinnar á nærumhverfi með sérstöku tilliti til fasteignaverðs, launaþróunar og atvinnulífs, meðal annars ferðaþjónustu.

Verkefninu stýrir hópur skipaður fulltrúum frá sveitarfélögunum og þróunarfélaginu.  

Tekið er fram, að breyta þurfi skipulagi svo koma megi fyrir lestarlínu, lestarstöðvum og viðhaldsaðstöðu. Með samstarfssamningnum veiti sveitarfélögin vilyrði fyrir lóðum í deiliskipulagi og úthluti þeim og/eða byggingarrétti, skv. nánara samkomulagi. Þá muni sveitarfélögin einnig tryggja nauðsynlegt samstarf við framkvæmd og gerð mats á umhverfisáhrifum.

Samningurinn gildir til fimm ára. Á þeim tíma skuldbinda sveitarfélögin sig til að taka ekki þátt í sambærilegu verkefni við aðra en Fluglestina-þróunarfélag. Hætti félagið við verkefnið fellur samningurinn úr gildi en þær greiningar og gögn sem orðið hafa til teljast opinber og almenningseign.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK