Óskar Finnsson til Íslandshótela

Óskar Finnsson.
Óskar Finnsson.

Óskar Finnsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Íslandshótela.

Íslandshótel reka 18 hótel sem eru meðal annars Grand Hótel Reykjavík, Best Western Hótel Reykavík, Hótel Reykjavík Centrum og Fosshótelin sem eru víðsvegar um landið. Í sumar munu um 1000 manns starfa hjá fyrirtækinu og á síðasta ári seldust um 500.000 gistirými, segir í fréttatilkynningu.

Á næstu vikum verður Fosshótel Jökulsárlón opnað sem verður 4 stjörnu hótel á Hnappavöllum með 104 herbergi.        

Óskar hefur starfað við veitingarekstur og ráðgjöf frá árinu 1990. Óskar var annar af eigendum Argentínu steikhús frá 1990 til 2003. Síðastliðin 13 ár hefur starfsvettvangur hans aðallega verið í Bretlandi og á Spáni þar sem hann hefur verið búsettur. Óskar hefur einnig stýrt fjölda matreiðsluþátta í sjónvarpi og nú síðast þættinum Korter í kvöldmat á mbl.is.

Íslandshótel áforma að opna tvö ný hótel á næstu árum.

Óskar er kvæntur Maríu Hjaltadóttur og eiga þau þrjú börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK