AFL rennur inn í Arion banka

Arion banki
Arion banki

AFL sparisjóður hefur um nokkurra mánaða skeið ekki uppfyllt kröfu Fjármálaeftirlitsins um eiginfjárhlutfall og hefur Arion banki, sem langstærsti eigandi stofnfjárs, unnið að málefnum sjóðsins í samstarfi við stjórn hans, Fjármálaeftirlitið og Samkeppniseftirlitið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka.

Í upphafi maímánaðar gerðu Arion banki og Samkeppniseftirlitið með sér sátt þar sem kveðið er á um að bankinn skuli selja eignarhlut sinn í opnu söluferli. Eignarhlutur Arion banka er 99,3% stofnfjár. 

AFL sparisjóður fékk endurskoðendur KPMG til að meta lánasafn sjóðsins. Sú vinna hefur leitt í ljós að staða sjóðsins er mun verri en fram kemur í síðasta ársreikningi og þarf sjóðurinn á verulegu eiginfjárframlagi að halda til að uppfylla kröfur Fjármálaeftirlitsins um eiginfjárhlutfall.

Úrlausn lagalegs ágreinings varðandi erlend lán AFLs myndi þar engu breyta um. Eftirlitsaðilar hafa verið upplýstir um stöðu sjóðsins. Að höfðu samráði við Fjármálaeftirlitið hefur Samkeppniseftirlitið nú endurskoðað fyrri ákvörðun og heimilað Arion banka að sameina AFL sparisjóð bankanum þar sem sparisjóðurinn er talinn fjármálafyrirtæki á fallanda fæti.

Því hefur verið fallið frá ákvörðun um sölu AFLs og mun Arion banki þegar í stað ráðast í að sameina AFL sparisjóð bankanum. Þar til sameiningarferlinu er lokið mun Arion banki standa þétt að baki AFLi sparisjóði og veita honum þá fyrirgreiðslu sem nauðsynleg er. Þetta á bæði við um ný útlán sem og innlán viðskiptavina.

AFL sparisjóður er staðsettur á Siglufirði og rekur auk þess útibú á Sauðárkróki. Markmið Arion banka er að reka öfluga fjármálaþjónustu á starfssvæði AFLs sparisjóðs og leggja þannig sitt af mörkum til uppbyggingar atvinnulífs og samfélags á svæðinu.

Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 9/2015, sem birt var þann 8. maí sl. var tekin afstaða til yfirráða Arion banka hf. yfir AFLi-sparisjóðs ses.

Grundvallaðist ákvörðunin á sátt sem Samkeppniseftirlitið og Arion banki gerðu með sér á grundvelli samkeppnislaga í framhaldi af því að bankinn hafði öðlast full yfirráð yfir sparisjóðnum.

Sáttin var bundin tilteknum skilyrðum sem Arion banki skuldbatt sig til þess að fara eftir, s.s. að setja AFL sparisjóð í söluferli. Í ákvörðun sem birt er í dag á heimasíðu eftirlitsins kemur fram að Samkeppniseftirlitið telji að forsendur hafi brostið fyrir frekari sölumeðferð á eignarhlut Arion banka í AFLisparisjóði, sbr. ákvörðun nr. 9/2015.

Þar af leiðandi séu ákvæði greinar 5.3 í ákvörðunarorðum hér með virk. Felur það í sér að ekki að hafa tekist samningar um sölu eignarhlutar Arion banka í AFLi innan sölutímabilsins þrátt fyrir að gripið hafi verið til nauðsynlegra sölutilrauna. Skal Arion banka því heimilt að grípa til nauðsynlegra ráðstafana, þ.m.t. kaupa á stofnfjárbréfum í eigu þriðju aðila, með það að markmiði að sameina AFL við Arion banka.

Frá Siglufirði.
Frá Siglufirði. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK