Baugsfélög gjaldþrota ef málið tapast

Gömlu höfuðstöðvar Baugs við Túngötu.
Gömlu höfuðstöðvar Baugs við Túngötu. mbl.is/Árni Sæberg

Ef viðskiptum við fyrrverandi hluthafa Baugs, þ.e. Gaum, Gaum Holding, ISP og Bague, verður rift af dómstólum, líkt og þrotabú Baugs fer fram á við Héraðsdóm Reykjavíkur, verða þau gjaldþrota.

Krafan hljóðar upp á 15 milljarða króna og tengist yfirtöku á Högum árið 2008. Gísli Guðni Hall, lögmaður umræddra félaga, segir fyrirséð að fyrirtækin geti ekki staðið undir kröfunum.

„Það er vegna þess að viðskiptin sem dómsmálið varðar voru hagstæð fyrir Baug, en afar óhagstæð fyrir hluthafana. Skuldbindingarnar sem félögin tóku yfir í þessum samningi voru miklu meiri en eignirnar. Félögin töpuðu á þessum viðskiptum gríðarlegum fjárhæðum,“ segir hann og vísar til þess þegar hluthafar í Baugi keyptu Haga af fjárfestingarfélaginu skömmu fyrir bankahrun.

Þrotabúið vill rifta viðskiptum þar sem Baugur keypti hlutabréf í sjálfum sér fyrir 15 milljarða króna af helstu eigendum félagsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK