Nýlega var undirritaður samningur á milli Veiðifélags Hafralónsár í Þistilfirði og Hreggnasa ehf um rekstur veiðisvæðis Hafralónsár næstu árin.
Hreggnasi mun því sjá um sölu veiðileyfa jafnt á laxa og silungasvæði árinnar. Hafralónsá er ein af þekktari veiðiám á norðausturlandi og um 40 kílómetrar að lengd en meðalveiði síðan 1974 upp á 350 laxa. Hún er vatnsmikil dragá sem þykir krefjandi veiðiá og með fallegustu ám landsins.
Metveiði var í ánni árið 2010 þegar 613 laxar komu á land. Er hún laxgeng 23 kílómetra að svokölluðum Laxfossi og er eingöngu veitt á flugu á fjórar til sex stangir.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |