Á vefsíðu Þjóðgarðsins á Þingvöllum kemur fram að hinn árlegi Urriðadans í Öxará verði næstkomandi laugardag en þá mun Jóhannes Sturlaugsson hjá rannsóknarfyrirtækinu Laxfiskum fræða gesti þjóðgarðsins um lífshætti Þingvallaurriðans.
Fram kemur í tilkynningu að kynning muni hefjast klukkan 14:00 og fer fram á bökkum Öxarár. Byrjar gönguferðin við bílastæðið þar sem Hótel Valhöll stóð eitt sinn og er merkt P5. Gengið er með ánni upp að Drekkingarhyl þar sem risaurriðinn og aðrir minni verða skoðaðir og fjallað um lífshætti þeirra.
Gert er ráð fyrir því að kynningin taki um eina og hálfa klukkustund og fá gestir tækifæri til að sjá risaurriðann í návígi og fræðast um þennan stórhöfðingja Þingvallavatns sem á hverju hausti gengur upp Öxará til hrygningar.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |