Besti leikmaðurinn áfram í Laugardalnum

Frá vinstri. Hildur Ýr Káradóttir Schram, Jónína Þórdís Karlsdóttir, Telma …
Frá vinstri. Hildur Ýr Káradóttir Schram, Jónína Þórdís Karlsdóttir, Telma Lind Bjarkadóttir, Viktoría Líf Önnudóttir Schmidt. Ljósmynd/Ármann

Ármann hefur framlengt samning sinn um tvö ár við fjóra mikilvægar körfuknattleikskonur. Það eru þær Telma Lind Bjarkadóttir, Viktoría Líf Önnudóttir Schmidt, Hildur Ýr Káradóttir Schram og Jónína Þórdís Karlsdóttir. 

Jónína hefur verið valin besti leikmaður fyrstu deildarinnar á lokahófi körfuknattleikssambands Íslands síðustu tvö tímabil. Telma, Hildur og Viktoría hafa svo vakið athygli fyrir flottar frammistöður síðustu ár og eru lykilleikmenn í liðinu. 

Ármann tapaði í oddaleik við ÍR í fyrra um að komast upp í úrvalsdeildina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert