Denver Nuggets vann nokkuð stóran sigur í áhugaverðri viðureign gegn New York Knicks í nótt NBA-körfuboltanum en bæði lið hafa unnið níu af síðustu ellefu leikjum sínum.
Leikið var í Colorado en Denver vann 113:97 með Serbann Nikola Jokic í góður gír eins og oft áður. Skoraði hann 32 stig og tók 15 fráköst. Immanuel Quickley var stigahæstur hjá New York með 18 stig en gamla veldið hefur komið á óvart í vetur með góðri frammistöðu.
Atlanta Hawks sýndi klærnar og burstaði Phoenix Suns í Georgíu 135:103. Miðherjinn Clint Capela sem lék með Svisslendingum í Laugardalshöllinni í ágúst 2019 skoraði 18 stig og tók 10 fráköst hjá Atlanta. Devin Booker skoraði 30 stig fyrir Phoenix sem ekki hafði tapað svo illa á tímabilinu.
Úrslit:
Denver - New York 113:97
Atlanta - Phoenix 135:103
Orlando - Boston 96:132
Cleveland - Portland 105:141
Minnesota - Memphis 135:139
Milwaukee - Washington 135:134
Indiana - Sacramento 93:104
Houston - Philadelphia 115:135
Utah - San Antonio 126:94