Tryggvi í undanúrslit Meistaradeildarinnar

Tryggvi Snær Hlinason er í Rússlandi með liði Zaragoza.
Tryggvi Snær Hlinason er í Rússlandi með liði Zaragoza. Ljósmynd/FIBA

Tryggvi Snær Hlinason og samherjar í spænska félaginu Zaragoza eru komnir í undanúrslit Meistaradeildar FIBA í körfuknattleik eftir sigur á rússneska liðinu Nizhnij Novgorod í dag, 86:78.

Úrslitakeppnin fer öll fram í rússnesku borginni Nizhnij Novgorod og því afar sterkt fyrir Tryggva og félaga hans að slá heimaliðið út í átta liða úrslitunum.

Tryggvi spilaði frekar lítið í dag, aðeins í rúmar tíu mínútur og tók þrjú fráköst en skoraði ekki stig.

Zaragoza spilar í undanúrslitunum á föstudag og leikur annaðhvort við Nymburk frá Tékklandi eða Pinar Karsiyaka frá Tyrklandi sem mætast í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert