Elvar mataði félaga sína gegn toppliðinu

Elvar Már Friðriksson gaf níu stoðsendingar gegn toppliðinu í Svíþjóð.
Elvar Már Friðriksson gaf níu stoðsendingar gegn toppliðinu í Svíþjóð. mbl.is/Hari

Elvar Már Friðriksson átti frábæran leik fyrir Borås þegar liðið heimsótti Luleå í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í dag. Leiknum lauk með 17 stiga sigri Borås, 85:68, en Elvar már gaf níu stoðsendingar í leiknum og var stoðsendingahæsti leikmaður vallarsins.

Þá skoraði Íslendingurinn 9 stig og tók þrjú fráköst á þeim tæpa hálftíma sem hann spilaði. Borås leiddi með þrettán stigum í hálfleik, 43:30. Borås vann þriðja leikhluta með sex stigum og leikmönnum Luleå tókst ekki að koma til baka í fjórða leikhluta.

Borås er í fjórða sæti deildarinnar með 4 stig eftir fyrstu þrjá leiki sína en Luleå er í efsta sæti deildarinnar með 8 stig eftir fyrstu fimm leiki sína. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert