Sigur á Írum tryggði 15. sætið

Orri Gunnarsson skoraði 21 stig.
Orri Gunnarsson skoraði 21 stig. Ljósmynd/FIBA

Íslenska U16 ára landslið karla í körfubolta hafði betur gegn Írum, 75:67, í lokaleik sínum í B-deild Evrópumótsins í Svartfjallalandi í dag. Með sigrinum tryggði liðið sér 15. sæti mótsins. 

Staðan í hálfleik var 35:22, Íslandi í vil og var sigurinn ekki í hættu í seinni hálfleik. Íslenska liðið vann fjóra leiki á mótinu og tapaði fjórum. 

Orri Gunnarsson skoraði 21 stig fyrir íslenska liðið í dag, Hjörtur Kristjánsson gerði 19 og Alexander Knudsen skoraði 11 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert