Giannis verður með Grikkjum á HM

Giannis Antetokounmpo verður með á HM í Kína.
Giannis Antetokounmpo verður með á HM í Kína. AFP

Giannis Antetokounmpo, einn besti leikmaðurinn í NBA-körfuboltanum í Bandaríkjunum, verður með gríska landsliðinu á HM í Kína í haust. 

Antetokounmpo var ekki með gríska landsliðinu á EM árið 2017 né í leikjunum í undankeppni HM, en hann lék síðast leiki með gríska liðinu í forkeppni Ólympíuleikanna 2016. 

Hann hefur leikið á tveimur stórmótum; EM 2015 og HM 2014, þar sem hann lék alls 14 leiki og skoraði 8 stig að meðaltali í leik.

Antetokounmpo hefur alls leikið 38 landsleiki fyrir Grikki, en hann hefur leikið með Milwaukee Bucks síðan 2013. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert