Sara leikmaður vikunnar

Sara Rún Hinriksdóttir.
Sara Rún Hinriksdóttir. mbl.is/Golli

Keflvíkingurinn Sara Rún Hinriksdóttir hefur verið í miklu stuði sem af vetrar í bandaríska háskólakörfuboltanum, NCAA. Í þriðja sinn á tímabilinu náði Sara tvöfaldri tvennu í leik með liði sínu Cansius-háskólanum. 

Sara átti magnaðan leik gegn Bowling Green í vikunni þar sem hún skoraði 18 stig og tók 17 fráköst. Var hún valin leikmaður vikunnar í MAAC-riðlinum sem Cancius leikur í. 

Nánar má lesa um framgöngu Söru á netmiðlinum Karfan.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert