Hættir Jóhann með Grindavík?

Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindvíkinga.
Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindvíkinga. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari karlaliðs Grindavíkur í körfuknattleik, sagði eftir mikinn skell á heimavelli gegn Keflavík í úrvalsdeildinni í kvöld, 62:97, að hann vissi ekki hvort hann héldi áfram störfum sem þjálfari liðsins.

Jóhann sagði þetta í viðtali við Vísi en þegar hann var spurður um leikmannamál og væntanlegan nýjan leikmann svaraði hann: „Það var farið af stað en eins og staðan er núna hef ég mikilvægari hluti að hugsa um, hvort ég ætli að halda yfirhöfuð áfram hérna. Þetta er hræðilegt. Já, ég verð að viðurkenna það.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert