Ísland vann góðan 74:63-sigur á Ungverjalandi í þriðja leik sínum í B-deild Evrópumóts 16 ára og yngri í körfubolta sem fram fer í Bosníu. Íslenska liðið hefur þar með unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum á mótinu.
Ástþór Atli Svalason átti magnaðan leik fyrir íslenska liðið og skoraði 31 stig. Friðrik Anton Jónsson bætti við ellefu stigum. Íslenska liðið var 19:17 undir eftir fyrsta leikhlutann en svaraði með að vinna þrjá síðustu leikhlutana.
Næsti leikur Íslands er á móti Búlgaríu næstkomandi mánudag.