Pólverjar reyndust of sterkir

Leikmenn U16 liðs Ísland sem keppa í Bosníu.
Leikmenn U16 liðs Ísland sem keppa í Bosníu. Ljósmynd/KKÍ

Íslenska landsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 16 ára og yngri, mátti þola 105:75-tap fyrir Póllandi í öðrum leik sínum á EM í Bosníu í dag. Ísland hefur nú unnið einn leik og tapað einum á mótinu. 

Pólska liðið vann fyrsta leikhlutann 23:19 og bætti jafnt og þétt í forskotið út leikinn. Hilmir Hallgrímsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 21 stig og Sveinn Birgisson bætti við ellefu stigum. 

Ísland leikur við Ungverjaland í þriðja leik sínum á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert