Grindavík styrkir sig fyrir veturinn

Ljósmynd/Grindavík

Grindavík hefur fengið tvö nýja körfuknattleiksmenn til liðs við sig og hefur þar að auki endurnýjaða samninga við tvo aðra.

Hlynur Hreinsson hefur verið lykilmaður FSu undanfarin ár en gerir eins árs samning við Grindavík. Þá hefur Nökkvi Harðarson snúið aftur heim eftir dvöl hjá Vestra.

Þeir Kristófer Breki Gylfason og Hilmir Kristjánsson hafa svo framlengt samninga sína við liðið og verða því áfram innan herbúða Grindavíkur sem og undanfarin ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert