Hildur stigahæst hjá Leganes

Hildur Björg Kjartansdóttir var stigahæst í sínu liði í kvöld.
Hildur Björg Kjartansdóttir var stigahæst í sínu liði í kvöld. mbl.is/Haraldur Jónasson / Hari

Leganes varð að sætta sig við 61:54-tap gegn Adelantados í B-deild Spánar í körfubolta í kvöld. Hildur Björg Kjartansdóttir var stigahæsti leikmaður Leganes með 13 stig á þeim 30 mínútum sem hún spilaði.

Hildur setti þrjú af sex þriggja stiga skotum sínum niður, en auk stiganna tók hún sex fráköst. Þrátt fyrir tapið er Leganes enn í 2. sæti deildarinnar með 12 sigra í 15 leikjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert