Gott gengi Hauks og félaga heldur áfram

Haukur Helgi í leik með Cholet.
Haukur Helgi í leik með Cholet. Ljósmynd/Heimasíða Cholet

Haukur Helgi Pálsson og liðsfélagar hans í Cholet unnu öruggan 91:67-útisigur á Boulazac í efstu deild Frakklands í körfubolta í kvöld. Sigurinn var sá þriðji í röð hjá Cholet og sá áttundi í síðustu tíu leikjum í öllum keppnum.

Haukur átti fínan leik og skoraði 11 stig, tók þrjú fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Cholet er í 8. sæti deildarinnar með 18 stig eftir 17 leiki, en átta efstu sætin gefa þátttökurétt í úrslitakeppninni um Frakklandstitilinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert