Ægir maður leiksins í sigri á toppliðinu

Ægir Þór Steinarsson átti mjög góðan leik í kvöld.
Ægir Þór Steinarsson átti mjög góðan leik í kvöld. Ljósmynd/Körfuknattleikssamband Litháens

Ægir Þór Steinarsson var maður leiksins í 76:70-sigri Castello á Prat í spænsku B-deildinni í körfubolta í kvöld. Hann skoraði 16 stig og tók sex fráköst. Hann var stigahæsti maður vallarins og með flesta framlagspunkta síns liðs. 

Prat er enn í toppsæti deildarinnar með 25 stig, þrátt fyrir tapið. Ægir og félagar eru í 7. sæti með 21 stig og í baráttu um að komast upp um deild. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert