Varnartilþrif Tryggva – myndskeið

Tryggvi Snær Hlinason treður í leiknum við Ísrael í átta …
Tryggvi Snær Hlinason treður í leiknum við Ísrael í átta liða úrslitunum. Ljósmynd/fiba.com

Tryggvi Snær Hlinason, leikmaður íslenska U20 ára landsliðsins í körfuknattleik, hefur vakið mikla athygli með liðinu í A-deild Evrópumótsins á Krít síðustu daga.

Ísland komst þar í átta liða úrslit, tryggði sér með því áframhaldandi sæti í A-deildinni og leikur um 5.-8. sætið um helgina.

Í þessari færslu á Twitter er bent á að Tryggvi sé í fremstu röð í fimm tölfræðiflokkum á mótinu og birt myndskeið af stórbrotnum varnartilþrifum hans, eins og sjá má hér fyrir neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert