Cleveland fyrst í undanúrslitin

LeBron James var stigahæstur í liði Cleveland Cavaliers í sigri …
LeBron James var stigahæstur í liði Cleveland Cavaliers í sigri liðsins gegn Indiana í kvöld. AFP

Cleveland Cavaliers varð rétt í þessu fyrsta liðið til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum í Austurdeild NBA-deildarinnar í körfubolta karla með 106:102-sigri sínum gegn Indiana Pacers. Cleveland Cavaliers hafði betur í einvíginu, 4:0.

LeBron James var stigahæstur í liði Cleveland Cavaliers með 33 stig og Kyle Irving kom næstur með 28 stig. Lance Stephenson var hins vegar atkvæðamestur í liði Indiana Pacers með 22 stig.

Cleveland Cavaliers, sem er ríkjandi NBA-meistari, mætir annaðhvort Toronto Raptors eða Milwauke Bucks í undanúrslitum, en staðan er jöfn, 2:2, í einvígi þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert