Reiknaðu möguleika Íslands

Íslenskir stuðningsmenn – víkingaklappið.
Íslenskir stuðningsmenn – víkingaklappið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Handhæg reiknivél er nú aðgengileg á netinu sem hjálpar knattspyrnuáhugamönnum að reikna út möguleika Íslands, eða annarra liða D-riðils á heimsmeistaramótinu í Rússlandi, á að komast áfram í 16-liða úrslitin.

Vonin um að Ísland komist áfram dofnaði eftir 2:0-tapið gegn Nígeríu á laugardaginn var en nú á þriðjudaginn verður lokaumferðin spiluð. Ísland mætir Króatíu og Nígería spilar við Argentínu.

Strákarnir okkar þurfa að vinna Króatíu og treysta á að Nígería vinni ekki Argentínu. Að sama skapi má argentínskur sigur ekki vera of stór og verði sá leikur jafn þarf Ísland að vinna með að minnsta kosti tveggja marka mun.

Hægt er að leika sér með möguleg úrslit leikjanna og sjá útkomuna með því að smella hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert