Ómar Ingi Magnússon skoraði ellefu mörk fyrir Magdeburg gegn GOG frá Danmörku í Meistaradeildinni í handbolta í gærkvöld en eitt markanna flokkast hreinlega undir list, eða þá töfrabrögð.
Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá Ómar fá sendingu frá Gísla Þorgeiri Kristjánssyni og koma Magdeburg í 30:27. Sjón er sögu ríkari!
ÓMAR INGI MAGNUSSON! Do we need to say more? Incredible! 👏😮#ehfcl @SCMagdeburg pic.twitter.com/Fsh8Eo3TET
— EHF Champions League (@ehfcl) December 7, 2022