Yfirlýsing frá aðalstjórn ÍBV

Eyjamenn standa þétt að baki handboltaliðanna sinna.
Eyjamenn standa þétt að baki handboltaliðanna sinna. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Aðalstjórn Íþróttabandalags Vestmannaeyja hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar þess að handknattleiksdeild félagsins tilkynnti í morgun að hún væri hætt störfum og lýsti um leið vantrausti á aðalstjórnina. 

Yfirlýsing aðalstjórnar ÍBV er á þessa leið:

Líkt og yfirlýsing fráfarandi handknattleiksráðs ÍBV sýnir ríkir ósætti hjá handknattleikráði félagsins um tiltekin mál sem hafa verið til skoðunar til fjölda ára. Aðalstjórn hefur unnið að tillögum um breytingar sem snúa að þessum málum og mun á aðalfundi sem fram fer í kvöld, 29.6.2022, leggja fram tillögu til fundarins um skipun nefndar til úrlausnar þess ágreinings sem er til staðar. 

Aðalstjórn hefur í góðri trú unnið með og rætt við deildir ÍBV íþróttafélags um þessi mál og harmar því þessa yfirlýsingu handknattleiksráðs. Aðalstjórn hvetur félagsmenn ÍBV íþróttafélags að mæta á aðalfund í kvöld sem fram fer í Týsheimilinu kl.: 20:00. Þá harmar aðalstjórn einnig að þessi mál hafi ratað í fjölmiðla og lýsir yfir eindregnum vilja til að leysa málin innan félagsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert