Hilmar Ágúst Björnsson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild ÍBV um tvö ár. Undanfarin ár hefur hann þjálfað meistaraflokk og U-lið kvenna ásamt Sigurði Bragasyni og hann mun halda áfram að sinna því.
Hilmar hefur einnig þjálfað yngri flokka hjá ÍBV í fjölmörg ár með góðum árangri.
Í tilkynningu frá félaginu segir:
„Við erum afar ánægð með að hafa náð samkomulagi við Hilmar og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.“