Kemur til Stjörnunnar frá FH í sumar

Britney Cots reynir skot að marki Þórs/KA í leik með …
Britney Cots reynir skot að marki Þórs/KA í leik með FH á Akureyri. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Senegalska handknattleikskonan Britney Cots sem hefur leikið með FH síðustu þrjú árin hefur samið við Stjörnuna um að leika með Garðabæjarliðinu næstu þrjú ár.

Cots er rétthent skytta og öflugur varnarmaður en hún er 24 ára gömul og var í æfingahópum yngri landsliða í Frakklandi á árum áður en spilar nú með A-landsliði Senegal. Hún lék í frönsku B-deildinni áður en hún flutti til Íslands.

Á facebook-síðu Stjörnunnar er sagt frá því að Cots hafi einnig æft frjálsíþróttir frá unga aldri og hafi orðið bikarmeistari með FH-ingum, þar sem hún eigi m.a. félagsmet í kúluvarpi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert