Akureyrarliðið KA/Þór stefnir á að taka þátt í fyrsta skipti í Evrópukeppni kvenna í handknattleik í vetur og dróst liðið gegn Jomi Salerno frá Ítalíu í 3. umferð Evrópubikarsins í gær.
Ítalska liðið var dregið á undan og samkvæmt áætlun átti því fyrri leikurinn að fara fram ytra 14. eða 15. nóvember og síðari leikurinn á Akureyri viku síðar. Andri Snær Stefánsson, þjálfari liðsins, segir ekki koma til greina að ferðast til Ítalíu.
„Við höfum engan áhuga á að fara út. Annaðhvort fara leikirnir fram heima eða að við drögum liðið úr keppni,“ sagði Andri Snær við Handbolta.is. „Viðræður við forráðamenn Salerno-liðsins eru hafnar. Það er okkar ósk að báðir leikirnir fari fram á okkar heimavelli,“ sagði hann sömuleiðis.