Stefán og Szeged sneru taflinu við

Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar unnu sætan sigur.
Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar unnu sætan sigur. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Stefán Rafn Sigurmannsson og liðsfélagar hans í Pick Szeged unnu sætan sigur á Motor Zaporizhzhya frá Hvíta-Rússlandi á heimavelli sínum í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag, 30:29. 

Staðan í hálfleik var 15:12, gestunum í vil, og skömmu fyrir leikslok var hún 29:28, Zaporizhzhya í vil. Szeged skoraði hins vegar tvö síðustu mörkin og tryggi sér sætan sigur. 

Stefán skoraði þrjú mörk fyrir Szeged sem er í öðru sæti B-riðilsins með 19 stig, stigi á eftir toppliði PSG. 

Skjern mátti þola 32:34-tap fyrir Nantes á heimavelli. Björgvin Páll Gústavsson varði 11 skot í markinu hjá Skjern og skoraði auk þess eitt mark. Tandri Már Konráðsson lék ekki með Skjern. 

Skjern er í botnsæti riðilsins með sex stig og er liðið í erfiðum málum þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert