Valur U hafði betur gegn Fylki í eina leik kvöldsins í Grill 66 deild kvenna í handbolta í dag, 29:27. Fylki mistókst þar með að nálgast ÍR og Aftureldingu í efstu tveimur sætunum.
Með sigri hefði Fylkir farið upp í 23 stig og verið aðeins einu stigi frá ÍR í öðru sæti og tveimur frá Aftureldingu sem er í toppsætinu. Fylkiskonur voru með 15:11-forystu í hálfleik en Valur U var mikið sterkari aðilinn í seinni hálfleik.
Alina Molkova og Ásdís Þóra Ágústsdóttir voru markahæstar hjá Val með átta mörk á meðan Hrafnhildur Irma Jónsdóttir var langmarkahæst hjá Fylki með 14 mörk. Valur U og Fylkir eru bæði með 21 stig í 3. og 4. sæti en U-lið úrvalsdeildarliðanna geta ekki farið upp um deild.