Landsliðsmarkmaðurinn Ágúst Elí Björgvinsson átti góðan leik fyrir Sävehof sem vann Guif á útivelli í sænsku A-deildinni í handbolta í dag. Staðan í hálfleik var 16:14, Sävehof í vil, og voru gestirnir sterkari í seinni hálfleik.
Ágúst var í byrjunarliðinu, varði 13 skot og var með 40 prósent markvörslu. Sävehof er í sjötta sæti deildarinnar með 33 stig eftir 25 leiki, en efstu átta sætin fara í úrslitakeppni um sænska meistaratitilinn.