Afturelding aftur í toppsætið

Þóra María Sigurjónsdóttir átti góðan leik.
Þóra María Sigurjónsdóttir átti góðan leik. Ljósmynd/Afturelding.is

Afturelding er komin aftur í toppsæti Grill 66-deildar kvenna í handbolta eftir nauman 29:27-sigur á Fram U á heimavelli sínum. Fram var með 14:12-forystu eftir fyrri hálfleikinn en Afturelding var sterkari í seinni hálfleik. 

Jónína Líf Ólafsdóttir átti mjög góðan leik fyrir Aftureldingu og skoraði tíu mörk og Þóra María Sigurjónsdóttir gerði níu. Kiyo Inage bætti við sex. Hjá Fram U var Lena Margrét Valdimarsdóttir með sjö mörk og Svala Júlía Guðmundsdóttir sex. 

Afturelding missti toppsætið í hendur ÍR í gærkvöldi, en fór upp í 25 stig með sigrinum í kvöld og er nú stigi á undan ÍR. Fylkir kemur þar á eftir í þriðja sæti með 21 stig.

Efsta sæti deildarinnar gefur sæti í deild þeirra bestu á meðan 2.-4. sæti keppa í umspili um eitt laust sæti í efstu deild, ásamt því liði sem hafnar í næstneðsta sæti Olísdeildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert