Slæmur lokakafli varð Evu að falli

Eva Björk Davíðsdóttir.
Eva Björk Davíðsdóttir. mbl.is/Ómar Óskarsson

Ajax frá Kaupmannahöfn varð að sætta sig við 27:22-tap gegn Ringkøbing í dönsku A-deildinni í handbolta í dag. Eva Björk Davíðsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Ajax og lagði upp fjögur til viðbótar fyrir liðsfélaga sína. 

Eva og stöllur voru með 20:17 forystu í síðari hálfleik en skelfilegur lokakafli varð þeim að falli. Ajax er í botnsæti deildarinnar án stiga eftir 15 leiki. Ringkøbing var sæti ofar með þrjú stig fyrir leikinn og varð Ajax því af gríðarlega mikilvægum stigum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert