Frakkar mæta Norðmönnum í úrslitum

Allison Pineau fagnar í kvöld.
Allison Pineau fagnar í kvöld. AFP

Frakkland er komið í úrslit heimsmeistaramóts kvenna í handbolta eftir 24:22-sigur á Svíþjóð í seinni undanúrslitaleiknum í kvöld. Leikurinn var jafn og spennandi en sænska liðið var með 12:11-forystu í hálfleik. 

Staðan var 22:21 sænska liðinu í vil þegar skammt var eftir en franska liðið skoraði þrjú síðustu mörkin og tryggðu sér sigurinn. Frakkar mæta því Þóri Hergeirssyni og norska liðinu sem vann Holland af miklu öryggi, 32:23, fyrr í dag. 

Úrslitaleikurinn er næstkomandi sunnudag kl. 16:30. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert