Álaborg er komið áfram í danska bikarnum í handknattleik karla eftir 38:30-sigur á Kolding á heimavell í dag. Alls voru sjö íslensk mörk skoruð og gerði Janus Daði Smárason fjögur þeirra fyrir Álaborg.
Arnór Atlason bætti við einu marki fyrir Álaborg en Ólafur Gústafsson skoraði tvö mörk fyrir Kolding. Aron Kristjánsson þjálfar Álaborg.